Saga 1912
Helstu ártöl í sögu 1912 samsteypunnar.
Nathan & Olsen hf. er forveri 1912 og myndar grunninn að samsteypunni ásamt því að vera í dag eitt af dótturfyrirtækjum hennar.
1912
Nathan & Olsen var stofnað þann 1. janúar árið 1912 af tveimur dönskum athafnamönnum, þeim Fritz Nathan og Carl Olsen.
Rekstur fyrirtækisins gekk vel fyrstu árin og starfsemi þess varð bæði víðtæk og blómleg. Reksturinn fólst jöfnum höndum í inn- og útflutningi, þar sem landbúnaðar- og fiskafurðir voru fluttar út og ýmsar nauðsynjavörur fluttar inn. Fyrirtækið starfrækti útibú víða um land og átti um tíma flutningaskip í siglingum milli hafna innanlands og erlendis.
Árið 1912 var að mörgu leyti framfaraár í sögu íslensku þjóðarinnar þrátt fyrir nokkrar efnahagsþrengingar. Sjö togarar bættust í fiskveiðiflota landsmanna og brúin yfir Ytri-Rangá var vígð í lok sumars. Óhætt er að segja að stofnun Nathan & Olsen hafi verið eitt af framfarasporunum í íslensku atvinnulífi þetta ár.
1914
John Fenger varð meðeigandi að fyrirtækinu, en það er nú í eigu a afkomenda hans.
Sama ár varð Knud Zimsen borgarstjóri í Reykjavík og heimstyrjöldin fyrri hófst.
1916
Nathan & Olsen reisti fyrsta stórhýsið í Reykjavík. Húsið er á horni Austurstrætis og Pósthússtrætis og var lengi kallað Nathan & Olsen húsið. Það var teiknað af Guðjóni Samúelssyni og þótti mjög glæsilegt. Þess má geta að þetta var fyrsta húsið í Reykjavík sem lýst var með rafmagnsljósum.
1920-1924
Þ
essi ár voru nokkur erfiðleikatími í rekstri fyrirtækisins. Stórhýsið á horni Austurstrætis og Pósthússtrætis var selt Íslandsbanka og starfsemin flutt að Vesturgötu 2, þar sem hún var til húsa allt til ársins 1968.
1941
Ákveðið var að fyrirtækið hætti útflutningi á landbúnaðar- og sjávarafurðum og einbeitti sér að innflutningi. Síðari heimstyrjöldin var í algleymingi. Þann 7. júlí kom bandarískt herlið til landsins og leysti af hervernd Breta sem höfðu hertekið landið árið áður. Mikill uppgangur fylgdi komu Bandaríkjamanna og hagur landsmanna vænkaðist – aukinn innflutningur Nathan & Olsen var því heppilega tímasettur, í takt við aukna kaupgetu almennings.
1942
Fyrirtækið opnaði skrifstofu í New York sem starfaði þar út stríðið enda voru leiðir milli landa í Evrópu lokaðar vegna átakanna. Á þessum árum voru fundin mörg vörumerki sem áttu eftir að verða miklir heimilisvinir íslenskra heimila allt til dagsins í dag.
1968
Nathan & Olsen flytja í nýtt húsnæði sem fyrirtækið hafði reist sér að Ármúla 8. Matvara, búsáhöld og umboðssala á byggingarvörum voru helstu áhersluþættir starfseminnar um þetta leyti og fram á seinni hluta 9. áratugarins.
1988
Fyrirtækið ákvað að einbeita sér að innflutningi á matvörum og hætti innflutningi og umboðsverslun með aðrar vörur. Starfsemin var þetta ár flutt í húsnæðið að Vatnagörðum 20.

1994
Tími uppkaupa hefst. Nú voru breyttir tímar á markaði og þurfti fyrirtækið að stækka til að auka hagkvæmni og styrkja stoðirnar enn frekar.
1999
Ákveðið er að skipta rekstri fyrirtækisins í einingar. Heildsölufyrirtækið Ekran ehf. var keypt og sameinað stóreldhúsadeild Nathan & Olsen. Jafnframt var Nathan & Olsen skipt upp í þrjú félög, þ.e. markaðsfyrirtækið Nathan & Olsen hf, eignarhaldsfélagið 1912 og fasteignafélagið Sökklar - 1912 ehf.
2008
Í dag er 1912 ehf er eitt af stærstu fyrirtækjum landsins í heildverslun með dagvöru. Í gegnum dótturfélög sín Nathan & Olsen hf og Ekruna ehf býr félagið yfir öflugum dreifileiðum til smásöluaðila, stóreldhúsa, iðnaðar og fríverslunar með kost.
Hjá 1912 starfa um 80 starfsmenn og er fyrirtækið með starfstöðvar í Reykjavík og á Akureyri. Höfuðstöðvar fyrirtækisins er í nýju húsnæði að Klettagörðum 19.
