Um 1912
Fyrirtækið byggir á traustum grunni eða allt frá árinu 1912 eins og nafnið gefur til kynna. Í dag höfum við yfir að ráða mörgum af sterkustu vörumerkjum heims, sem eru einnig fremst í flokki hér á landi. En markmið okkar hefur ávalt verið að tengja framleiðendur og neytendur saman á sem hagkvæmasta hátt. Hjá 1912 starfa um 90 starfsmenn og er fyrirtækið með starfstöðvar í Reykjavík og á Akureyri.
