Ekran ehf. – Klettagarðar 19 – 104 Reykjavík – Sími: 530 8500 – Fax: 530 8501 – kt. 430999-2579 - ekran@ekran.is
Beint í leiðarkerfi vefsins.
Frílager Ekrunnar er skipaverslun sem sérhæfir sig í sölu á ótolluðum vörum um borð í erlend skip sem koma til Íslands og íslensk skip sem eru á leið úr landi. Frílager getur einnig þjónað skipum sem ekki eru í millilandasiglingum.
Starfsmenn frílagers hafa áratuga reynslu í þjónustu við skip og áhafnir og leggja sig fram um að veita viðskiptavinum framúrskarandi þjónustu.
Frílager Ekrunnar er opinn frá 8:00 til 16:30 alla virka daga og eru vörur afgreiddar til kaupanda þeim að kostnaðarlausu á þeim tíma á svæðinu frá Akranesi suður um til Þorlákshafnar. Vörur sem afgreiða þarf annarsstaðar á landinu eru sendar samkvæmt óskum kaupanda á hans kostnað.
Frílager Ekrunnar sér um að fá tollvörð á staðinn í skipum sem afgreidd eru í Reykjavík og að hafa samband við tollgæslu í því umdæmi sem afgreiðsla á að fara fram þegar þörf er á.
Frekari upplýsingar og/eða pantanir:
Ekran: sími: 530 8500 - fax 530 8501 - soludeild@ekran.is
Bakvaktarþjónusta er allan sólarhringinn, alla dag ársins í síma 824-8530.
Við hlökkum til að heyra frá þér og erum til þjónustu reiðubúin.