Ekran ehf. – Klettagarðar 19 – 104 Reykjavík – Sími: 530 8500 – Fax: 530 8501 – kt. 430999-2579 - ekran@ekran.is
Beint í leiðarkerfi vefsins.
Hlutverk Ekrunnar ehf. er innflutningur og sala á matvælum, hráefnum og hjálparefnum til veitingahúsa, mötuneyta, framleiðslueldhúsa, útgerða og matvælaiðnaðar og eru virkir viðskiptavinir fyrirtækisins um 1200 talsins.
Ekran er þjónustufyrirtæki sem hefur þarfir viðskiptavinarins að leiðarljósi í starfsemi sinni.
Ekran er með starfsemi bæði í Reykjavík og á Akureyri. Á báðum stöðum hefur fyrirtækið yfir að ráða stórum vörugeymslum og söluskrifstofum.
Aðsetur Ekrunnar er að Klettagörðum 19 í Reykjavík og að Óseyri 3 á Akureyri. Flatarmál birgðageymslna er samtals um 8000m². Ekran hefur yfir að ráða fullkomnum frysti- og kæligeymslum þannig að tryggð eru gæði vörunnar eins og kostur er. Þessar aðstæður gera okkur kleift að þróa starfsemi okkar til muna í framtíðinni og geta þannig aukið vöruúrval og þjónustu í samræmi við þann kröfuharða markað sem Ekran starfar.